



Exo Soft Logic
3
3
0
1
PLAST
EXO SOFT
Exo er staðlað plast í Evolution línunni sem kemur í tveimur mismunandi stífleikum, „soft“ og „hard“. Plastið gefur frábært grip í öllum aðstæðum og eyðist smám saman við notkun sem breytir flugeiginleikum disksins með tímanum. Hard útgáfan er stífari í hendi og heldur lögun sinni lengur en Soft útgáfan.
LOGIC
Logic er frábær kostur fyrir bæði pútt og stutt köst að körfu. Hann er frekar þunnur og hannaður til að sitja vel í hendi, alveg óháð því hvernig þú kýst að grípa um hann. Þar sem hann er ávalur að framan liggur hann mjög þægilega og rennur áreynslulaust úr gripinu í hverju kasti. Markmiðið með hönnuninni var að búa til disk sem bregst vel við fínum leiðréttingum í tækninni en refsar manni ekki of harkalega þótt kastað sé af aðeins of miklum krafti.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.




Exo Soft Logic
2,690 kr

Discmania












