
ENUFF BOLTAR FYRIR HJÓLABRETTI
Enuff boltar eru ætlaðir til að festa hjólabrettaöxla við brettið og henta vel þegar skipta þarf um týnda eða slitna bolta eða setja saman nýtt hjólabretti. Boltarnir eru úr ryðfríu stáli og hverju setti fylgja átta boltar ásamt sjálflæsandi róm sem halda öxlunum tryggilega föstum.
Boltarnir fást í hefðbundinni útgáfu með sex svörtum og tveimur silfurlituðum boltum eða litríkri útgáfu með boltum og róm í samsvarandi litum. Sexkanntur fylgir með svo auðvelt er að festa boltana.
EIGINLEIKAR
- Átta boltar og átta sjálflæsandi rær í hverju setti
- Boltar úr ryðfríu stáli
- Sjálflæsandi rær sem draga úr hættu á að boltarnir losni
- Sexkanntur fylgir með
- 1 eða 1,25 tommur
- Hefðbundið sett: Sex svartir og tveir silfurlitaðir boltar
- Litað sett: Átta litríkir boltar með róm í samsvarandi litum
- Henta til að festa hjólabrettaöxla
- Selt í setti með átta boltum og róm
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.


Enuff














