
DRAGON BALL Z - KAME SENNIN HJÓLABRETTI
Dragon Ball Z og Hydroponic hafa tekið höndum saman í opinberu samstarfi og úr því er þetta samsetta hjólabretti sprottið. Það er kennt við Kame Sennin og er tilbúið til notkunar frá fyrsta degi.
Samsett bretti frá Hydroponic eru hugsuð fyrir þá sem vilja byrja á hjólabretti eða taka það upp aftur án þess að þurfa að velja hvern hlut fyrir sig, og það á mjög góðu verði. Í pakkanum er bretti með gripteipi, öxlar sem passa við breidd þess, fjögur hjól með hröðum legum og rær sem halda öllu saman.
Brettið er smíðað úr sjö lögum af kanadískum Hard Rock-hlyni sem eru límd saman með epoxýresíni. Lögun þess er miðlungs íhvolf (concave).
Tæknilegar upplýsingar
- Bretti: 7 laga kanadískur Hard Rock-hlynur með epoxýresíni.
- Lengd: 32 tommur.
- Breidd: 8 tommur.
- Hjólhaf: 14,2 tommur.
- Lögun: Miðlungs íhvolf (concave).
- Öxlar: 139 mm / 5,25 tommur.
- Hjól: 54 mm, keilulaga (conical), harka 100A.
- Öxulgúmmí (bushings): Harka 95A.
- Legur: Hydroponic ABEC7.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.

Hydroponic














