





DHARCO YOUTH DH KNEE PAD
Hnéhlífar hannaðar sérstaklega fyrir börn og unglinga sem taka fjallahjólreiðar alvarlega. Þær eru með Level 1 CE-vottuðum RHEON™ höggpúðum sem hreyfast með líkamanum og bregðast við þegar mest á reynir – því það að detta er hluti af leiknum þegar keyrt er af krafti.
Sterk smíði úr slitsterku og loftgóðu airprene efni, með netaefni aftan á fyrir gott loftflæði og formað snið sem tryggir þægindi í hreyfingu. Hlífarnar sitja örugglega á sínum stað með stillanlegum festingum með frönskum rennilásum – hvort sem hjólað er í brekkum, í parkinu eða á æfingum.
EIGINLEIKAR
- Level 1 CE-vottuð RHEON™ höggvörn (EN 1621-1:2012)
- Þróaðar sérstaklega fyrir fjallahjól
- Púðar má fjarlægja fyrir þvott
- Mjúk, sveigjanleg og loftgóð vörn
- Auka vörn á hliðum og efst á hné
- Ytra lag úr slitsterku airprene efni
- Netaefni aftan á fyrir betri loftun
- Stillanlegar festingar með frönskum rennilásum
- Formað snið sem fylgir hreyfingu líkamans
EFNISUPPLÝSINGAR
- Ytra lag: Polyester og teygjuefni (Airprene)
- Aftan: Nælon netaefni
- Höggpúðar: RHEON™
STÆRÐ OG SNIÐ
Við bjóðum tvær stærðir fyrir börn og unglinga. Almennt passar S/M fyrir börn undir 10 ára og L/XL fyrir 10 ára og eldri, en auðvitað er hvert barn mismunandi – stærðin fer eftir líkamsbyggingu.
Mældu lærið 18 cm ofan við hné með málbandi (beint á húð, ekki yfir fatnað) og veldu þá stærð þar sem mælingin fellur innan viðmiðunarbils í stærðartöflu.
UMHIRÐA
- Má þvo í vél á köldu prógrammi, án þess að fjarlægja púðana
- Ekki má setja í þurrkara – það getur skemmt púða og efni
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslun okkar Silfursmára 2, Kópavogi
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.







Létt og Öflug vörn

Gerðar fyrir mesta hasarinn

Þægilegt viðhald
