Karfa

Karfan þín er tóm

Dharco Mens Race Jersey - Black Snake

Keppnistreyjan frá Dharco er hönnuð fyrir þá sem vilja léttleika, öndun og frammistöðu þegar mest á reynir. Hún er innblásin af hinu goðsagnakennda Black Snake downhill track og hefur verið notuð af heimsmeistaranum Amaury Pierron. Treyjan var þróuð í samstarfi við Commencal Muc-Off DH Team og er bæði lengri og þrengri í sniði en hefðbundnar treyjur frá Dharco. Þetta er treyja fyrir hjólreiðamenn sem sækjast eftir nákvæmni, hraða og því að finna hið fullkomna flæði í hverri línu.

15.990 kr
Vörunúmer: MRJ-BLS-S

Stærð:
Stærðartafla Dharco Mens Race Jersey
Stærð Brjóst (cm) Lengd (cm)
Small 51.5 71
Medium 54 73
Large 56.5 75
XL 59 77
2XL 61.5 79
3XL 64 81
Dharco Mens Race Jersey - Black Snake
Dharco Mens Race Jersey - Black Snake 15.990 kr

Dharco

DHaRCO er ástralskt vörumerki sem sameinar afslappaðan stíl og hágæða eiginleika fyrir fjallahjólreiðar. Þau hanna fatnað sem líkist frjálslegum daglegum fatnaði en veitir mikla hreyfigetu, öndun og þægindi. Innblásturinn kemur frá sörfmenningu Sydney og lífsstíllinn þar skín í gegn. Þau nota vandað efni þar sem eiginleikar eins og rakadrægni eru ofnir inn í vefinn. Fötin eru bæði endingargóð og umhverfisvæn. DHaRCO lítur á fjallahjólreiðar sem lífsstíl og hönnunin speglar það.