


D-Line P2 Flex 2
2
3
0
1
PLAST
D-LINE
D-Line er hagkvæmasta plastið í Originals línunni. Það gefur frábært grip og með tímanum breytast flugeiginleikar diskanna, sem gerir spilurum kleift að eiga sömu týpuna í mismunandi stöðugleika í pokanum. Plastið kemur í þremur mismunandi stífleikum þar sem Flex 1 er mýkst, Flex 2 er meðalstíft og Flex 3 er stífasta týpan.
P2
P2 er vinsælasti diskur Discmania frá upphafi og hefur lengi verið uppáhald bæði atvinnuspilara og þeirra sem spila sér til ánægju. Hann býður upp á stöðugt og áreiðanlegt flug, hvort sem kastað er fast eða rólega, og kanturinn er hannaður þannig að diskurinn liggur vel í hendi bæði í pútti og köstum af teig. P2 er sannkölluð klassík hjá Discmania og diskur sem allir frisbígolfarar ættu að prófa að minnsta kosti einu sinni.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.



D-Line P2 Flex 2
2,590 kr

Discmania














