





CMP ATLAS HERRA ÚLPA
Öflugur herra skíðajakki hannaður til að veita áreiðanlega vörn og þægindi við krefjandi vetraraðstæður. Jakkinn er úr twill efni með léttrii og þjappanlegri Feel Warm Flat einangrun sem veitir góða hitavörn án þess að auka þyngd.
Clima Protect himna á milli efna tryggir vatnsheldni og góða öndun. Límdir saumar veita aukna vörn gegn vindi og raka. Jakkinn er með losanlega hettu, stillanlegum Lycra ermum, innri snjóhlíf og fjóra vasa. Tveir rennilásvasar eru á hliðum, einn innri vasi og einn á ermi sem hentar vel fyrir skíðakort.
Hönnunin er sportleg og nútímaleg með áberandi línum á öxlum og ermum sem gefa jakkanum kraftmikið útlit sem sker sig úr á skíðasvæðinu.
EIGINLEIKAR
- Þyngd: 1025 g
- Lengd: 78 cm
- Vatnsheldni: WP 10.000
- Öndun: MVP 10.000
- Límdir saumar
- Clima Protect
- Feel Warm Flat 160 g
- Vatnsfráhrindandi
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.



















