








CMP BARNA SKÍÐAÚLPA
CMP skíðaúlpan er hlý og slitsterk úlpa fyrir börn sem hentar vel fyrir skíðaiðkun og útiveru yfir vetrartímann. Feel Warm Flock einangrun heldur vel á líkamshita í köldu veðri og mjúkt fóður gerir úlpuna þægilega í notkun. Ytra efnið er endingargott án þess að vera þungt eða stíft og hefðbundið snið úlpunnar gerir hana þægilega í daglegri notkun.
Clima Protect himna veitir góða vörn gegn vindi og bleytu, á meðan öndun efnisins hjálpar raka að komast út við hreyfingu. Úlpan er með 10.000 mm vatnsheldni, vatnsfráhrindandi yfirborði og fastri hettu sem skýlir fyrir kulda og vindi. Innbyggð snjóvörn kemur í veg fyrir að snjór komist inn undir úlpuna, sérstaklega þegar verið er á skíðum eða leikið í snjónum.
EIGINLEIKAR
- Þyngd: 660 g
- Lengd: 50 cm
- Vatnsheldni: 10.000 mm
- Öndun: 10.000 g/m²/24 h
- Clima Protect himna
- Feel Warm Flock einangrun
- Vatnsfráhrindandi yfirborð
- Vindheld
- Föst hetta
- Innbyggð snjóvörn
- Hefðbundið snið
- Ytra efni: 100% pólýester, 145 g/m²
- Fóður: 100% pólýester
- Einangrun: 100% pólýester
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.










CMP












