


C-Line Horizon Glacier - Gannon Buhr Creator Series
Gannon Buhr Creator Series
5
5
0
2
PLAST
C-LINE
C-Line er harðgert og glært plast sem er þekkt fyrir mikla endingu og stöðugt flug. Þetta plast heldur lögun sinni lengi, brotnar hægt inn og hentar vel þeim sem vilja áreiðanlegt flug í öllum aðstæðum. Áferðin er slétt og rennileg með meðal gripi sem virkar jafnt í sól og rigningu.
SÉRKENNI
HORIZON
Horizon plastið skartar tveimur aðskildum og fallegum litasamsetningum þar sem brún disksins og miðjan eru í sitt hvorum litnum.
C-LINE HORIZON GLACIER - GANNON BUHR CREATOR SERIES
Glacier er hannaður af engum öðrum en Gannon Buhr og er hraður og stöðugur midrange diskur sem þolir mikinn kraft og mótvind. Það er óhætt að treysta því að Glacier haldi beinni línu og endi flugið á stuttum en ákveðnum sveig fram á við. Diskurinn er þægilega flatur að ofan og brúnin er án hnúðs (beadless) og örlítið íhvolf. Fyrir þá sem þekkja Method þá má líkja Glacier við stóra bróður hans þar sem hann þolir mun meira álag og snúning strax í byrjun flugsins.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.

Discmania












