Karfa

Karfan þín er tóm

BT Soft Maiden (B2B)

Maiden er frábær kostur ef þú leitar að hlutlausum pútter sem er þunnur í hendi og liggur því einstaklega vel hjá flestum. Hann kemur verulega á óvart með því hversu vel hann heldur línunni án þess að velta yfir og klárar flugið með mjög litlum sveig í lokin. Þetta gerir Maiden að áreiðanlegum félaga fyrir þá sem vilja beint og fyrirsjáanlegt flug jafnt í púttum sem og í lengri skotum að körfunni.

3
4
0
1
PLAST
BT SOFT
BT Soft er mýksta plastið í BT-línunni frá Westside og er hannað til að liggja vel í hendi. Blanda af gúmmíi og öðrum efnum gefur plastinu slétta áferð og gott grip. Það heldur eiginleikum sínum vel við mismunandi aðstæður, hvort sem er í rigningu, snjó eða þurru veðri. BT Soft er notað í pútterum og approach diskum og heldur fluginu stöðugu í daglegri notkun.
2.690 kr
Vörunúmer: BT-SOFT-MAIDEN

Litur:
BT Soft Maiden (B2B)
BT Soft Maiden (B2B) 2.690 kr

Westside Discs

Westside Discs var stofnað árið 2009 í samstarfi við Latitude 64 og sækir innblástur í veður og aðstæður á Norðurlöndum. Frá upphafi hefur áherslan verið á áreiðanlegt flug og diska sem standa sig vel í krefjandi aðstæðum. Með djarfri nálgun og sterkri tengingu við frisbígolfsamfélagið hefur Westside Discs skapað sér skýra sérstöðu og er í dag hluti af stærri heild innan íþróttarinnar, án þess að missa tengslin við uppruna sinn.