
BT Hard Swan 2 (B2B)
SWAN 2
Swan 2 byggir á vinsældum upprunalega Swan púttersins en býður upp á enn betra flug þó tilfinningin í hendi sé sú sama. Hann heldur línunni sinni ögn betur og virkar vel jafnvel þegar það er dálítill vindur á flötinni. Á meðan forverinn var hannaður til að hjálpa þeim sem kasta á minni hraða, þá gefur Swan 2 öllum spilurum þetta langa og beina pútt sem marga hefur dreymt um. Þetta er áreiðanlegur diskur sem skilar mikilli nákvæmni og svífur beint í keðjurnar af öryggi.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.


Westside Discs












