
BT Hard Crown (B2B)
3
4
0
1
PLAST
BT HARD
BT Hard er stífasta plastið í BT-línunni frá Westside. Plastið er hart í hendi, með traustu gripi og heldur lögun sinni vel þrátt fyrir mikla notkun. Það er slitsterkt og breytist lítið með tímanum, sem gerir það áreiðanlegt fyrir spilara sem kjósa stífara plast. BT Hard er fáanlegt í pútterum og midrange diskum og veitir jafna og stöðuga tilfinningu í kasti.
CROWN
Crown er pútter sem hentar spilurum sem vilja hafa svokallaða brún eða „bead“ neðan á disknum ásamt stöðugu og áreiðanlegu flugi. Með góðu svifi og miklum stöðugleika er hann frábært verkfæri í hvaða tösku sem er þar sem hann skilar sömu niðurstöðunni í hvert einasta skipti. Með því að velja Crown færðu aukið öryggi sem getur skipt sköpum þegar mikið liggur við á flötinni.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

BT Hard Crown (B2B)
2.690 kr

Westside Discs












