



BLIZ SPARK
Bliz Spark skíðagleraugun bjóða upp á áreiðanlega vernd og góða frammistöðu dag eftir dag. Tvöföld linsa með loftræstum ramma kemur í veg fyrir móðu og rakamyndun. Ytri linsan er úr óbrjótanlegu X-PC polycarbonate efni með 100% UV vörn og innri linsan úr acetate með móðuvörn. Spark eru OTG gleraugu, sem þýðir að hægt er að nota þau yfir venjuleg gleraugu. Tveggja laga froða með flís tryggir hámarks þægindi og breið ól með sílikoni heldur gleraugunum stöðugum á hjálmi, jafnvel í krefjandi aðstæðum. Spark eru frábær kostur fyrir þá sem vilja áreiðanleika, skyggni og þægindi í brekkunum.
- CE vottað: Uppfyllir allar helstu öryggis- og heilsukröfur samkvæmt ESB reglum.
- 100% UV-vörn: Verndar augun gegn UVA og UVB geislum.
- Polycarbonate linsa: Linsan er 10x höggþolnari en plast eða gler og veitir hámarks vörn.
- Grilamid TR90 rammi: Létt, sveigjanlegt og endingargott efni sem hentar öllum veðurskilyrðum.
- Tvöföld linsa: Ytri linsa úr X-PC polycarbonate og innri acetate linsa með móðuvörn.
- Loftræstur rammi: Koma í veg fyrir móðu og rakamyndun.
- 2-laga froða með flís: Veitir hámarks þægindi og mjúka snertingu við húðina.
- OTG hönnun: Hægt að nota yfir venjuleg gleraugu.
- Ól með sílikoni: Tryggir að gleraugun haldist á sínum stað á hjálminum.
- Mjúkt hulstur fylgir: Verndar gleraugun þegar þau eru ekki í notkun.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.





Bliz












