



BLIZ P002
Bliz P002 eru sportgleraugu fyrir þá sem gera miklar kröfur til endingar, styrks og áreiðanleika. Sterk og vönduð umgjörð er hönnuð til að standast krefjandi aðstæður og hentar vel fyrir utanvegahlaup, fjallahjólreiðar og aðra útivist þar sem búnaðurinn þarf að þola mikið álag.
Polycarbonate linsan veitir skýra sýn og góða vörn á meðan létt TR90 umgjörðin tryggir þægilega notkun yfir langan tíma. P002 er hannað fyrir fjölbreyttar aðstæður utandyra og veitir góða vernd og stöðugleika hvort sem leiðin liggur um grýttar slóðir, skógarstíga eða opið landslag.
Tæknilegir eiginleikar:
- 100% UV-vörn: P002 verndar augun gegn skaðlegum UVA- og UVB-geislum og hentar vel til notkunar við fjölbreyttar aðstæður utandyra.
- Polykarbónat linsa: Linsan er framleidd úr höggþolnu polykarbónati sem er allt að tífalt sterkara en hefðbundið plast eða gler. Efnið veitir góða vörn og skýra sýn við krefjandi aðstæður.
- Grilamid TR90: Létt og endingargott efni sem sameinar sveigjanleika og styrk. Efnið heldur lögun sinni vel og veitir þægilega notkun í mismunandi veðurskilyrðum.
- Sterk og endingargóð umgjörð: P002 er hannað fyrir krefjandi útivist þar sem búnaðurinn þarf að þola mikið álag. Sterk uppbygging gerir gleraugun að góðum kosti fyrir fjallahjólreiðar, utanvegahlaup og aðra útivist.
- CE-vottun: Öll Bliz Active gleraugu eru CE-merkt og uppfylla helstu kröfur um heilbrigði og öryggi samkvæmt tilskipunum Evrópusambandsins. Handbók fylgir í umbúðum.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.





Bliz












