




BLIZ FLOZ
Bliz Floz eru skíðagleraugu fyrir þá sem vilja hraða, þægindi og ákveðinn karakter í brekkunni. Þau henta vel í alla fjallamennsku þar sem kröfur um stöðuga sjón og öryggi eru miklar. Floz eru hönnuð til að sitja vel á hjálmi og halda fókusnum þar sem hann á að vera, jafnvel í krefjandi aðstæðum.
Tvöföld sívalningslaga linsa veitir skýra sjón og 100 prósent vörn gegn UVA og UVB geislun. Ytri linsan er úr pólýkarbónati og þolir vel högg og álag, á meðan innri linsan er með áhrifaríkri móðuvörn sem dregur úr þéttingu í kulda og mikilli hreyfingu.
- 100 prósent vörn gegn UVA og UVB geislum.
- Passa vel yfir gleraugu (OTG).
- Sílikonmeðhöndluð ól sem heldur gleraugunum stöðugum á hjálmi.
- Þriggja laga frauð með mjúkri flísfóðrun fyrir aukin þægindi.
- Loftræstur rammi sem stuðlar að skýrri sjón.
- Mjúkur geymslupoki fylgir.
- CE vottuð skíðagleraugu sem uppfylla kröfur Evrópustaðla um öryggi og heilsuvernd.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.






Bliz












