






CORAL RASPBERRY 10'2"
Þetta fjölhæfa uppblásna SUP bretti er hannað fyrir þá sem vilja stöðugt, létt og þægilegt bretti sem hentar við fjölbreyttar aðstæður. Það hentar jafnt fyrir rólega daga á kyrru vatni og skemmtilegar ferðir í smá öldum þegar íslenska sumarið leikur við mann.
Brettið sameinar góðan stöðugleika og lipra svörun á vatni sem gerir það að frábærum valkosti bæði fyrir byrjendur og vana iðkendur. Styrkt uppbygging brettisins veitir meiri stífleika og betri tilfinningu í róðrinum á meðan mjúkur EVA flöturinn tryggir gott grip og þægindi í lengri ferðum.
Falleg litahönnun og vandaður búnaður gefa brettinu fágað yfirbragð án þess að fórna notagildi. Það er auðvelt að pakka því saman, bera með sér og undirbúa fyrir næsta ævintýri hvort sem ferðinni er heitið að stöðuvatni, sjónum eða rólegri á.
EIGINLEIKAR
- Lengd: 10'2" / 310 cm
- Breidd: 31" / 78 cm
- Þykkt: 4.7" / 12 cm
- Rúmtak: 238 L
- Þyngd: 9.0 kg
- Hámarksburðargeta: 105 kg
- Hámarks loftþrýstingur: 15 psi
- Notkun: Fyrir slétt vatn, smáar öldur og almenna notkun
HÖNNUN OG TÆKNI
- Styrkt uppbygging: Veitir allt að 20% meiri stífleika og betri stöðugleika á vatni
- Tvöföld styrking: Eykur endingu og styrk brettisins
- Drop stitch kjarni: Heldur brettinu léttu og stöðugu
- EVA standflötur: Mynstrað yfirborð sem tryggir gott grip og þægindi
- SAFS™ festikerfi: Fljótlegt og öruggt kerfi til að festa miðugga
- Kick pad aftan á bretti: Hjálpar til við beygjur og meiri stjórn
- Burðarhandfang: Mjúkt neoprene handfang sem auðveldar flutning
INNIFALIÐ Í PAKKANUM
- Bakpoki: ECO FRIENDLY CIRCUPACK™
- Dæla: Double Action Liquid Air V2
- Ár: Carbon Hybrid Pastel Paddle
- Miðuggi: Swift Attach center fin
- Öryggislína: Coil leash
Hvað er í kassanum?
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.








Fyrir íslenskar aðstæður

Þægilegt og öruggt grip

Hannað fyrir ferðalagið

Aqua Marina












