
Active Premium Sensei (B2B)
3
3
0
3
PLAST
ACTIVE PREMIUM
Active Premium er sterkt og hálfglært plast sem þolir mikla notkun og heldur lögun sinni lengi. Það brotnar hægt inn og veitir stöðugt flug, en er með sléttara yfirborð sem gerir gripið aðeins minna en í mýkri plasttegundum. Þetta er traustur kostur fyrir spilara sem vilja endingargott plast sem stendur af sér álag og veðurskilyrði.
SENSEI
Sensei er pútter sem liggur grunnt í hendi og hentar vel ólíkum handastærðum. Hann er hannaður fyrir allar gerðir af approach-köstum og pútti og er einfaldur í notkun. Í hraðari köstum fer diskurinn beint áfram og þegar hraði og snúningur minnkar kemur fram áreiðanleg beygja í lokin. Sensei er frábær kostur jafnt fyrir byrjendur sem og spilara með meiri reynslu.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Discmania












