





ACON TRAMPÓLÍN HJÓLABRETTI
ACON trampólín hjólabretti er hannað fyrir þá sem vilja æfa hjólabrettatrix á öruggari hátt. Brettið sameinar raunverulega tilfinningu hefðbundins hjólabretta og mjúka uppbyggingu sem hentar til notkunar á trampólíni. Hvort sem markmiðið er að læra fyrstu trixineða fínpússa tæknina áður en farið er út á ramp eða götu, veitir brettið skemmtilega og örugga æfingu.
Brettið er smíðað úr vönduðum hlyni sem gefur svipaða tilfinningu og hefðbundið hjólabretti, en er klætt mjúku EVA frauð efni til að vernda bæði notandann og trampólínið. Sérhannaðir frauð truckar hreyfast á svipaðan hátt og hefðbundnir truckar og gera auðveldara að æfa jafnvægi, líkamsbeitingu og vinsæl brettatrix eins og ollies og kickflips.
Trampólín hjólabrettið er tilbúið til notkunar beint úr kassanum og hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Það er eingöngu ætlað til notkunar á trampólíni og ekki á hörðu undirlagi.
Stærð og upplýsingar
- Stærð: 82 × 21 × 11 cm
- Pakkning: 87 × 23 × 12 cm
- Þyngd: 1,2 kg
- Samsetning: Engin samsetning nauðsynleg
Efni
- Hágæða hlynviðarbretti með mjúkri EVA frauðklæðningu
- Truckar úr þéttu EVA frauðefni
- 100% endurvinnanlegt
Notkun
- Hannað til notkunar á trampólíni
- Ekki ætlað til notkunar á hörðu undirlagi
- Uppfyllir CE, ASTM og REACH öryggisstaðla
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.







Acon












