Shotgun - S
Shotgun var stofnað af litlum hópi foreldra á Nýja-Sjálandi sem hafa ástríðu fyrir hjólreiðum og útivist. Það var þeim þyrnir í augum að geta ekki tekið yngri börnin með í lengri fjallahjólaferðir. Þá hófst hugmynda- og hönnunarvinna og úr varð Shotgun barnasætið. Það hefur notið gríðarlegra vinsælda um heim allan.
Nú geta yngstu börnin loksins komið með í fjallahjólaferðirnar!
Hægt er að stilla breidd, horn og sætið sjálft er stillanlegt
Passar á hjól með efri slá frá 30 - 68 mm að breidd og neðri slá frá 30 - 100 mm að breidd.