













CMP SOFTECH HALF-ZIP TURTLE NECK
Hálfrennd rúllukragapeysa úr Softech flís er einstaklega létt og mjúk. Efnið er með carbon áferð sem tryggir mýkt, öndun og þægindi allan daginn. Peysan hentar fullkomlega sem millilag undir skíðajakka eða aðra yfirhöfn, en getur einnig verið notuð sem innstalag í mildari aðstæðum. Efnið andar vel og dregur raka frá húðinni, sem gerir peysuna fullkomna fyrir virka daga á fjöllum eða í hvers kyns útivist. Hálfrennd hönnun auðveldar að stilla loftræstingu eftir þörfum og rúllukraginn veitir auka hlýju þegar kalt er í veðri.
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.















CMP














