Barnið þitt mun elska að þjóta um á hinu margverðlaunaða Mini Deluxe hlaupahjóli frá Micro. Þú þarft engar áhyggjur að hafa því það er hljóðlátasta, mýksta og endingarbesta hjólið sem völ er á.
Börnin munu öðlast sjálfsöryggi, jafnvægi og samhæfingu þegar þau þeysast um á þriggja hjóla sparkbrettinu okkar. Börnin nota líkamsþyngd sína til að stýra á öruggan hátt.
Mini Deluxe hjólið er með hágæða hjól og sveigjanlega plötu styrkta með trefjagleri. Hjólin og platan vinna saman að því að dempa allar ójöfnur á veginum svo að það er þægilegt fyrir barnið þitt að þeysast um.
Hafðu ofan af fyrir barninu þínu næstu árin! Stillanlegu t-stöngina á Mini Deluxe hjólinu er hægt að færa upp í 63,5 cm svo að leiktækið vex með barninu á aldrinum 2-5 ára, allt að 50 kg.
Það er hægt að skipta öllum íhlutum út í Mini hjólinu! Þegar barnið þitt er orðið of stórt getur þú lappað upp á hjólið og látið það ganga til systkinis eða vinar. Þannig endar Mini hjólið þitt aldrei á ruslahaugunum.
You may also like
SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN
Fáðu að vita þegar nýjar vörur eru væntanlegar eða tilboð!